|
|
||||||||
Muna lykilorð | Búin/n að gleyma lykilorðinu??? |
Allir flokkar >>
Almennt Fréttatilkynning frá Landssambandi Stangaveiðifélaga - Veiðidagur fjölskyldunnar |
|
|||
Yfirlit pósts (Nýjasti fyrst) | |
Admin | Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 29. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Landssamband Stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum. Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Í ár verða 31 vatn í boði á veiðideginum. Eftirtaldir veiðistaðir verða í boði frítt fyrir alla fjölskylduna: Á Suðurlandi verður frítt að veiða í Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni, Elliðavatni, Meðalfellsvatni, Þingvallavatni fyrir landi þjóðgarðsins, Úlfljótsvatni og Gíslholtsvatni. Á Vesturlandi og Vestfjörðum verður frítt að veiða í Langavatni á Mýrum, Hítarvatni, Vatnasvæði Lýsu, Hraunsfjarðarvatni, Hraunsfirði, Baulárvallavatni, Haukadalsvatni, Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði og Syðridalsvatni í Bolungarvík. Á Norðurlandi verður frítt að veiða í Hópinu, Höfðavatni, Vestmannsvatni, Botnsvatni, Ljósavatni, Hraunhafnarvatni, Æðarvatni, Arnarvatni, Kringluvatni og Sléttuhlíðarvatni. Á Austurlandi verður frítt að veiða í Haugatjarnir, Urriðavatni, Langavatni, Víkurflóði og Þveit. Nánari upplýsingar um veiðisvæðin er að finna í bæklingi LS um Veiðidag fjölskyldunnar (http://landssambandid.is/images/VEIDIDAGURFJOLSKYLDUNNAR2014.pdf) Með kveðju, |
Copyright © 1995-2012 Veiðivefurinn® Allur réttur áskilinn. |